Vetrarleiga orlofshúsa

Vert er að minna félagsmenn á að þeim stendur til boða fimm góðir valkostir í orlofsmálum í vetur. Hér er um að ræða dvöl í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins í Reykjavík.

Vetrarleigan stendur yfir frá 1. september til 1. júní ár hvert. Allur veturinn er undir og ekki þarf lengur að sækja sérstaklega um jól og páska.

Auðvelt er að skoða hvað er laust og panta á Félagavefnum, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins í síma 460 3600 og panta hús eða bústað.