Vetrarleiga orlofshúsa

Vert er að minna félagsmenn á að þeim stendur til boða sex góðir valkostir í orlofsmálum í vetur. Hér er um að ræða dvöl í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins í Reykjavík og á Egilsstöðum.

Vetrarleigan stendur yfir frá 1. september til 1. júní ár hvert. Allur veturinn er undir og ekki þarf lengur að sækja sérstaklega um jól og páska.

Auðveldast er að panta á Félagavefnum, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins og panta hús eða bústað.