Vert er að minna félagsmenn á að þeim stendur til boða sex góðir valkostir í orlofsmálum í vetur. Hér er um að ræða dvöl í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins í Reykjavík og á Egilsstöðum.
Vetrarleigan stendur yfir frá 1. september til 1. júní ár hvert. Undanfarin ár hefur vetrinum verið skipt niður í ákveðin tímabil en tekin var sú ákvörðun að hafa allan veturinn undir og ekki þarf lengur að sækja sérstaklega um jól og páska.
Auðveldast er að panta á Félagavefnum, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins og panta hús eða bústað.