Vetrarleiga - færri íbúðir í Reykjavík um tíma

Þann 1. ágúst sl. var opnað fyrir vetrarleigu orlofshúsa og orlofsíbúða félagsins. Vetrarleigan stendur yfir frá 1. september til 1. júní ár hvert. Ekki þarf að sækja sérstaklega um jól og páska.

Auðveldast er að panta á Félagavefnum, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins og panta hús eða bústað.

Fyrr á árinu keypti félagið fimm nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og var í leiðinni ákveðið að selja fjórar eldri í staðinn. Á einherju tímabili í vetur verða því færri íbúðir í boði hjá félaginu en vanalega þar sem við þurfum að afhenda einhverjar eldri áður en við fáum þær nýju afhentar.