Vertu á verði!

Vert er að minna á heimasíðuna www.vertuaverdi.is. Endilega sendið inn ábendingar ef verslanir eru ekki vera að bregðast rétt við breytingum á virðisaukaskatti og vörugjöldum.

 

Upplýsingar um síðuna

Aðildarfélög ASÍ standa fyrir átaki til að sporna gegn óeðlilegum verðhækkunum sem allir landsmenn verða fyrir barðinu á um þessar mundir. Landsmenn eru hvattir til að láta vita af óeðlilegum verðhækkunum með því að senda inn farsímamyndir eða skilaboð á vefinn, vertuáverði.is. Sömuleiðis er hægt að láta vita af því sem vel er gert og vekja athygli á verðlækkunum. Markmiðið með átakinu er tvíþætt: Annars vegar að veita verslunar- og þjónustuaðilum aðhald, hvetja þá til að sýna ábyrgð og stöðva verðhækkanir. Hins vegar að að brýna fyrir almenningi að vera á verði og fylgjast vel með þróun verðlags. Okkur finnst öllum komið nóg af verðhækkunum. Við þurfum að standa saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar.