Verkfallsvarsla - línurnar lagðar

Vel hefur gengið í verkfallsvörslu á svæði Einingar-Iðju sem staðið hefur yfir meira og minna frá því að verkfall hófst. Nokkur gengi eru á ferð um félagssvæðið,  á Akureyri og nágrenni, Dalvík, Hrísey, Siglufirði, Ólafsfirði og Grenivík. Verkfallsverðir hafa oftast fengið góðar móttökur og á flestum stöðum hefur allt verið í góðu lagi. Þessir verkfallsverðir á Akureyri voru að skipuleggja næstu eftirlitsferð sem stendur nú yfir