Verkalýðshreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki

Undanfarin ár hefur Eining-Iðja fengið Gallup til að gera umfangsmiklar viðhorfs- og kjarakannanir meðal félagsmanna. Þessar kannanir eru sambærilegar könnunum sem nokkur önnur félög innan verkalýðshreyfingarinnar hafa látið gera. Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar ársins 2020.

Í könnuninni voru margir þættir kannaðir, m.a. var spurt um hvort verkalýðshreyfingin gegni mikilvægu eða lítilvægu hlutverki í samfélaginu í dag.

91,4% sögðu að verkalýðshreyfingin gegni mjög mikilvægu eða mikilvægu hlutverk í dag en einungis 2% svöruðu lítilvægu. Þetta eru betri niðurstöður en síðast þegar tölurnar voru 85,4% og 4,5%.

Niðurstöðurnar eru afar gagnlegar fyrir félagið því markmiðið er alltaf að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör og bættan aðbúnað við vinnu. Einnig þarf að gæta þess að áunnin réttindi séu virt.

Stjórn félagins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í launakönnun félagsins í ár.