Samanburður frá haustönn 2013
Gjaldskrá félaganna hefur staðið í stað hjá 3 félögum af 15 frá því í fyrra, en þau félög eru Afturelding, Keflavík og Fimleikafélagið Rán. Hin félögin hafa hækkað gjaldskrána um 2-17%. Mesta hækkunin er hjá Íþróttafélaginu Hamri, sem hækkaði gjaldið úr 24.000 kr. í 28.000 kr. eða um 17%, Fimleikafélag Akureyrar og Fimleikafélag Akraness hafa hækkað um 14%, Grótta um 11% og Ungmennafélagið Selfoss um 10%.
Verðlagseftirlitið bar saman gjaldskrá fyrir 8-10 ára börn sem æfa u.þ.b. 4. klst. á viku, en tekinn er saman æfingakostnaður fram að jólum (4. mánuðir). Ekki er tekið tillit til þess hvaða fimleika er verið að æfa (t.d. almenna, hóp- eða áhalda). Öll félögin eiga það sameiginlegt að setja saman gjaldskrá eftir aldri og fjölda klukkustunda sem æft er í viku hverri.
Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð að ræða og sú þjónusta eða dagskrá sem í boði er á námskeiðum félaganna er ekki metin. Verðlagseftirlitið tekur heldur ekki tillit til safnanna sem íþróttafélögin standa fyrir og eða styrkja frá sveitarfélögunum, hvorki æfingagallar né keppnisgjöld eru með í gjaldinu sem borið er saman.