Verðbreytingar frá júní 2011, hækkanir vörukörfu á ASÍ

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 9-26% frá því í júní 2011, þar til í júní 2015. Verð vörukörfunnar hefur hækkað minna í lágvöruverðsverslunum og versluninni Hagkaupum en öðrum verslunarkeðjum. Mest hefur vörukarfan hækkað um 26% hjá Víði, en minnst um 9% hjá Hagkaupum.

Verðhækkanir vörukörfu ASÍ og vísitala neysluverðs

Til hliðsjónar má benda á að verð á matar- og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs hefur hækkað um 15% frá því í júní 2011 þar til nú. Þegar rýnt er í verðhækkanir verslunarkeðjanna á þessum 4 árum má sjá að verðhækkanirnar eru mismiklar eftir verslunarkeðjum. Minnsta hækkunin á þessu tímabili er hjá Hagkaupum um 9% og Krónunni um 10%, þar á eftir kemur Bónus með hækkun um 12% og Nettó um 13%. Mesta hækkun á þessu tímabili er hjá Víði um 26%, 10/11 um 24%, Samkaupum-Úrval um 21% og Samkaupum-Strax um 19%.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara.

Við samsetningu vörukörfunnar voru vogir Hagstofunnar hafðar til hliðsjónar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni og Nettó og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Víði, og Samkaupum-Úrval og klukkubúðunum, 10-11 og Samkaupum-Strax.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.  

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.