Verðbólgan lækkar og er nú 3,1%

Á heimasíðu ASÍ kemur fram að verðlag lækkaði um 0,72% í janúarmánuði sem er meiri lækkun en gert var ráð fyrir og mælist ársverðbólga nú 3,1%. Í  þessum tölum birtast þau jákvæðu skilaboð sem fjölmörg fyrirtæki og sveitarfélög hafa sent út í tengslum við átakið VERTU Á VERÐI! með því að sýna aðhald og ábyrgð í verðlagsmálum.  Ljóst er að hækkanir á opinberri þjónustu og álögum vinna hins vegar á móti þessu átaki og eru líkt og verkalýðshreyingin hefur ítrekað bent á, í algjörri andstöðu við þann samtakamátt um stöðugleika í verðlagsmálum sem lagt var upp með við gerð kjarasamninga í desember.

Lækkunin á vísitölu neysluverðs í janúar er að mestu tilkomin vegna útsöluáhirfa á fötum og skóm, húsgögnum og húsbúnaði en lækkun á flugfargjöldum og eldsneyti hefur einnig áhrif til lækkunar á verðlagi í mánuðinum. 

Á móti þessu vegur að ýmsar opinbera álögur hækka sem hafa samtals 0,27% áhrif til hækkunar á verðlagi. Þar á meðal eru:

  • Áfengi og tóbak hækka um 1,7% vegna hækkunar á áfengis- og tóbaksgjöldum í  upphafi árs – Vísitöluáhirf 0,06%.
  • Vörugjöld á bensín og olíur hækkuðu um áramót sem skilar sér í því að bensínverð er um 1 prósentustigi hærra ella sem hefur um 0,06% áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs.  
  • Heilbrigðsþjónusta hækkar um 4,7% vegna hækkana á gjaldskráum sjúkratygginga og aukinni kostnaðarþátttöku sjúklinga. Þar á meðal eru hækkun um tæplega 20% hjá heimilislæknum, 19% hjá sérfærðingum og 9% í annarri heilbrigðisþjónustu. Tannlæknaþjónusta lækkar hins vegar um 1,4% vegna aukinnar kostnaðarþátttöku hjá börnum. Vísitöluáhrif samtals um 0,08%.
  • Póstþjónusta sem er að mestu í eigu ríkisins hækkar um 6,1% og hefur 0,01% áhirf til hækkunar á verðlagi. 
  • Álögur á fasteignaeigendur hækka: Sorphirða, holræsagjöld og vatn hækka samtals um 3,4% og hafa 0,07% áhrif til hækkunar á vísitölunni.
  • Rafmagn hækkar um 1,6% og hefur 0,03% vísitöluáhirf.
  • Lækkun á virðisaukaskatti á papírsbleium úr 25,5% í 7% sem skilar sér hins vegar í tæplega 15% lækkun á bleium og hefur 0,02% áhirf til lækkunar á verðlagi og  sömuleiðis lækkun á stimpilgjöldum vegna húsnæðiskaupa um 10% sem hefur einnig 0,02% áhrif til lækkunar á verðlagi.

Í þessu ljósi er afar mikilvægt að stjórnvöld taki af skarið og afturkalli verulegan hluta þessara hækkanna og leggi þannig með áþreifanlegum hætti sitt af mörkum að ná verðbólgunni niður á þolanleg stig.