Verðlagseftirlit ASÍ áætlar að varahlutir s.s. bremsuklossar, stuðarar og stýrisendar sem áður báru 15% vörugjöld ættu að lækka um 15,2% þegar horft er til afnáms vörugjalda og lækkunar vsk. úr 25,5% í 24%.
Niðurstöður verðlagseftirlits ASÍ
Verðlagseftirlitið kannaði verð á varahlutum í byrjun október 2014 og svo aftur í apríl 2015. Í meðfylgjandi töflu eru dregnar saman
helstu niðurstöður úr samanburði á verðkönnununum í október og apríl. Taflan sýnir fjölda þeirra varahluta sem eru
í samanburðinum frá hverju fyrirtæki og hvernig verð hafa breyst á tímabilinu.
|
Hækkanir |
Óbr. Verð |
Lækkun um 0-4,9% |
Lækkun um 5-9,9% |
Lækkun um 10-14,9% |
Lækkun um 15% eða meira |
Fjöldi vara í samanburði |
Toyota |
1 |
|
2 |
|
2 |
|
5 |
B/L |
2 |
|
1 |
|
3 |
4 |
10 |
Hekla |
|
|
6 |
1 |
2 |
1 |
10 |
Askja |
3 |
|
2 |
5 |
|
|
10 |
Bernard |
1 |
|
1 |
4 |
2 |
2 |
10 |
Hyundai |
|
|
1 |
1 |
2 |
1 |
5 |
Bílanaust |
|
|
2 |
|
|
2 |
4 |
AB varahlutir |
1 |
|
1 |
|
1 |
2 |
5 |
Brimborg |
1 |
1 |
1 |
1 |
5 |
1 |
10 |
Samtals |
9 |
1 |
17 |
12 |
17 |
13 |
69 |
Hlutfall af heild |
13% |
1% |
25% |
17% |
25% |
19% |
100% |
Í ljós kemur að í 14% tilfella hækkar verð eða er óbreytt, í fjórðungi tilfella lækkar verð um 0-4,9%, í 17% tilfella um 5-9,9% og í 19% tilfella um 15% eða meira. Með öðrum orðum er verð í 81% tilfellum að lækka minna en sem nemur áhrifum af afnámi vörugjalda og lækkunar á vsk.
Þegar einstök fyrirtæki eru skoðuð nánar sést að hlutfallslega lækka Toyota, Hekla og Bílanaust verð oftast á bilinu 0-4,9%, Askja og Bernard oftast á bilinu 5-9,9%, Brimborg á bilinu 10-14,9% en algengasta hlutfallslega lækkunin hjá B/L og AB varahlutum er 15% eða meira. Það er því mjög misjafnt hvernig verð er að lækka á umræddu tímabili milli verslana.
Þessar niðurstöður vekja upp þá spurningu; hvers vegna er verð á bílavarahlutum er ekki að lækka meira en raun ber vitni?
Bílabúð Benna og Stilling neituðu þátttöku á þeim tímapunkti sem upphafsmæling verðlagseftirlits fór fram.