VelVirk - Jólin

Jólin eru tími gleði og eftirvæntingar hjá flestum og tengjast dýrmætum minningum úr æsku. Þau verða nokkuð frábrugðin þetta árið vegna aðstæðna og ákveðnar hefðir verða að bíða betri tíma. Mögulega verða jólin rólegri nú en síðustu ár - minna er um viðburði og meiri tími gefst til undirbúnings og notalegrar samveru með sínu nánasta fólki. Eitt er víst að við munum seint gleyma jólunum 2020!

En þrátt fyrir að aðdragandi jóla verði öðruvísi nú getur undirbúningur fyrir hátíðina verið talsverður og í mörgu að snúast. Á heimasíðunni VelVirk má finna nokkuð góð ráð sem gætu gagnast fyrir jólin.