Verum virk: Aukin þátttaka – betra samfélag var yfirskrift 10 ára afmælisráðstefnu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs sem haldin var í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 4. maí. Ráðstefnan var fjölsótt og heppnaðist í alla staði mjög vel.
Boðið var upp á mjög áhugaverða fyrirlesara á ráðstefnunni, erlenda jafnt sem innlenda, sem fjölluðu um heilsu, atvinnu, virkni, samfélagið og þátttöku frá fjölbreyttum sjónarhornum.
Sjá má glærur framsögumanna og myndasafn frá ráðstefnunni í frétt á vef VIRK.