Dagana 18. og 19. febrúar sl. stóð Starfsgreinasambandið fyrir kjaramálaráðstefnu um kjarasamning SGS og Samtaka atvinnulífsins. Ráðstefnan fór fram Hótel Hilton Nordica og var mæting góð, en ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá aðildarfélögum SGS. Þrír fulltrúar sátu ráðstefnuna fyrir hönd félagsins, þau Björn Snæbjörnsson, Anna Júlíusdóttir og Þorsteinn E. Arnórsson.
Fyrirkomulag ráðstefnunnar var þannig að fyrri dagurinn var nýttur í samlestur á fyrstu köflum kjarasamningsins en sá seinni fór að mestu í hópavinnu, þar sem valdir kaflar í samningnum voru til umræðu. Almenn ánægja var meðal gesta með afrakstur ráðstefnunnar og ljóst er að vinna á borð við þessa mun nýtast sambandinu í komandi kjarasamningsviðræðum.
SGS mun halda tvær kjaramálaráðstefnur til viðbótar á næstunni. Þann 9. og 10. apríl nk. verður samningur SGS og SA vegna veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða og hliðstæðrar starfsemi, á dagskránni og nokkrum vikum síðar verður ríkissamningurinn tekinn til umræðu.