Vel heppnaður fræðsludagur bifreiðarstjóra og tækjastjórnenda

Á fjórða tug bifreiðastjóra og tækjastjórnenda komu saman á fræðsludegi á vegum Starfsgreinasambandsins til að ræða sín mál og koma áherslum á framfæri þann 18. apríl sl. Þar af mættu sex frá Einingu-Iðju, en fulltrúarnir voru frá 10 aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins um allt land og eru flestir starfandi bílstjórar.

Farið var yfir endurmenntunarmál og ábyrgð bílstjóra, kjaramálin voru augljóslega í brennidepli og vinnuvernd svo eitthvað sé nefnt. Áherslur fyrir komandi kjarasamninga voru ræddar sérstaklega og var starfsumhverfi, ábyrgð og reynsla ofarlega á baugi. Þáttakendur voru ánægðir með framtakið og segir á heimasíðu SGS að ljóst sé að fræðsludagurinn verður endurtekinn enda full þörf á að bílstjórar eins og aðrir hópar komi saman og ræði sitt starfsumhverfi og kjör sérstaklega.