Veistu hvað…? á sjö tungumálum

Félagið er búið að gefa út bæklinginn „Veistu hvað við getum gert fyrir þig?“ á sjö tungumálum, íslensku, dönsku, ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og þýsku. Nú er unnið að því að þýða hann á tvö tungumál í viðbót, á tælensku og arabísku. Bæklingana má fá á skrifstofum félagsins en einnig má finna þá hér á heimasíðunni.

Í þessum bækling er m.a. fjallað á stuttan hátt um sjúkrasjóðinn, orlofssjóðinn og fræðslusjóðinn. Svarað er spurningunni „Af hverju stéttarfélög“ Fjallað er um trúnaðarmenn og til hvers þeir eru. Útskýrt hvað kjarasamningur er og sagt frá hverjir helstu kjarasamningar félagsins eru. Þá er sagt frá hvað félagsgjaldið færir viðkomandi og útskýrt er félagafrelsi, en launamönnum er frjálst að standa utan stéttarfélaga, þ.e. að gerast ekki fullgildir félagsmenn. Þá eru þeir aukafélagar þar sem vinnuveitendum ber að greiða af öllum starfsmönnum sem vinna eftir kjarasamningnum félagsins. Aukafélagar borga en hafa engin réttindi! Borgar það sig?