Vegleg gjöf til hjálparsamtaka í Eyjafirði

Sjö stéttarlýðsfélög í Eyjafirði afhentu í dag, mánudaginn 3. desember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 2.120.000.

Styrkurinn verður notaður í samstarfsverkefni Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Rauða krossins. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi samtök taka höndum saman fyrir jólin og veita þeim aðstoð sem þurfa með þátttöku fyrirtækja og bæjarbúa á Akureyri og nágrenni. Samstarfið á að einfalda málið, nú þarf einungis að sækja um aðstoð á einum stað Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá Siglufirði að Grenivík.

Það sem þarf að gera er að hringja í síma 867 5258 milli kl. 10:00 og 12:00 á mánudegi, þriðjudegi eða miðvikudegi fyrir 11. desember nk., en þann dag verður byrjað að úthluta. Varðandi umsóknir má einnig hafa samband við félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar og prestana út með firði.

Félögin sjö sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja, Byggiðn – Félag byggingamanna, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Berg félag stjórnenda.

Ef einhverjir fleiri vilja leggja átakinu lið þá er hægt að leggja pening inn á reikning verkefnisins, (0302-13-175063, kt. 460577-0209) Munið, margt smátt gerir eitt stórt.

Hér fyrir neðan er grein sem Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju, ritaði um samstarf hjálparsamtakanna:

Samtakamáttur á aðventu
Nýtt framtak er orðið til á gömlum grunni. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn sameinast nú um stuðning við þau sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda fyrir jólin. Vonir standa til að fólk á svæðinu taki höndum saman til styrktar þessu verkefni, því sameinuð getum við lyft grettistaki.

Það er ekki auðvelt að standa í þeim sporum að þurfa að leita eftir aðstoð hjá góðgerðarfélögum eða hjálparsamtökum. Mörg úr okkar hópi íbúa hér í Eyjafirði stóðu í þeim sporum fyrir síðustu jól og þau verða ekki færri nú. Því miður. Gera má ráð fyrir rúmlega 500 slíkum umsóknum fyrir þessi jól. Flest þeirra sem ákveða að fylla út slíka umsókn, hvort heldur þau búa ein eða eru með fjölskyldu, eiga það sameiginlegt að vera búin að marg spyrja þeirrar spurningar hvort ekki sé til önnur leið. Síðasta úrræðið er að leita eftir aðstoð hjá góðgerðasamtökum.

Með þessari breytingu hverfa matarpokaúthlutanir. Eftir að umsókn hefur verið metin fær viðkomandi einstaklingur eða fjölskylda úthlutað inneignakorti / gjafabréfi sem léttir undir jólainnkaupin. Ný samstaða fæðist þar með, því mörkin milli þess sem gefur og þess sem þiggur verða óljósari. Tilfinning þess sem sækir um styrk verður síður sú að hann / hún sé í stöðu hins hjálparþurfi. Líklegra er að tilfinningin verði sú að við sem samfélag séum að taka höndum saman svo að öll getum átt jól með sæmilegri reisn.

Tvennt þarf þó að koma til svo að af því geti orðið. Annars vegar þurfa aflögufærir einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir í samfélaginu að leggja átakinu lið með því að leggja pening inn á reikning verkefnisins, (0302-13-175063, kt. 460577-0209) eða með því að koma gjafabréfum til Mæðrastyrksnefndar. Hins vegar þurfum við öll, ég og þú, að taka þessu framtaki vel og líta á það sem lið í því að sameinuð tökum við skref í átt að því manneskjuvæna samfélagi sem við viljum sjá hér norðan heiða.

Gleðilega aðventu

Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju