Vefnámskeiðið Pottaplöntubarinn með Auði Ottesen - Frítt fyrir félagsmenn

SÍMEY langar að vekja athygli á vefnámskeiði sem er í boði hjá þeim 4. febrúar nk. milli klukkan 16:30 og 18:00 með henni Auði Ottesen. Námskeiðið heitir Pottaplöntubarinn og er námskeiðslýsingin eftirfarandi: Viltu fríska uppá pottaplönturnar þínar og eða eignast nýjar? Kynna þér nýjar tegundir, læra að umpotta, taka græðlinga og raða saman smart tegundum í samplantanir. Ef svo er þá er þetta námskeið fyrir þig.

Frekari upplýsingar og skráning með því að smella hér

Athugið að félagsmenn í Einingu-Iðju sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir félagsmenn í Einingu Iðju.