ASÍ og BSRB bjóða til veffundar í dag, þriðjudaginn 9. febrúar, kl. 12:30 þar sem kynntar verða niðurstöður úr nýrri spurningakönnun Vörðu um stöðu launafólks á Íslandi. Meðal þess sem fram kemur í niðurstöðunum er að tæplega þriðjungur svarenda á erfitt með að ná endum saman og um fjórðungur getur ekki mætt óvæntum útgjöldum. Staða innflytjenda er mun verri en annarra.
Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, mun kynna niðurstöður könnunarinnar sem varpar ljósi á stöðuna á vinnumarkaði í dag. Markmið könnunarinnar var að meta stöðu launafólks innan ASÍ og BSRB í kjölfar kófsins og sérstaklega stöðu atvinnulausra.
Boðið er upp á túlkun á ensku.
Dagskrá:
Staða launafólks á vinnumarkaði
Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, kynnir niðurstöður nýrrar spurningakönnunar.
Næstu skref
Kolbeinn Hólmar Stefánsson, lektor við HÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Garðar Hilmarsson, varaformaður Sameykis, stýrir fundinum.
Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins var stofnuð af ASÍ og BSRB vorið 2020. Markmið Vörðu er að efla rannsóknir á vinnumarkaði og auka þekkingu á stöðu launafólks.