Vaktavinna og vellíðan - fyrirlestur í kvöld

Opinbera deild Einingar-Iðju býður í kvöld upp á fyrirlestur þar sem fjallað verður um áhrif vaktavinnu á heilsu, fjölskyldu- og félagsslíf, og skipulagningu vaktavinnu út frá vinnuverndarsjónarmiði. 

Hvenær: Í kvöld, fimmtudaginn 23. febrúar, kl. 20:00

Hvar: Í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri 

Fyrirlesari: Helga Guðrún Erlingsdóttir, Hjúkrunarforstjóri Öldrunarheimila Akureyrar

Fyrirlesturinn er fyrir alla félagsmenn Einingar-Iðju sem áhuga hafa á þessum málum.

Verið velkomin, Stjórn Opinberu deildar félagsins