Útilegukortið komið í sölu - breyttir skilmálar

Útilegukortið er nú til sölu á skrifstofu félagsins á Akureyri. Kortið verður til sölu á skrifstofum félagsins á Dalvík og Fjallabyggð síðar í vikunni. Félagsmenn keypt kortið á mikið lækkuðu verði. Fullt verð er 14.900 krónur en Einingar-Iðjufélagar greiða einungis 8.000 krónur fyrir kortið.

Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á Útilegukortinu og rétt er vekja athygli á breyttum skilmálum kortsins fyrir komandi sumar. Nú er hvert kort takmarkað við 28 gistinætur á hverju sumri. Korthafar verða því að framvísa kortinu fyrir hverja nótt sem gist er á tjaldstæðinu og verður þá ein gistinótt strikuð út hverju sinni.

Útilegukortið er í gildi eins lengi og tjaldsvæðin eru opin. Kortið veitir tveimur fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en þó má einungis gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti.

Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. Ath! gistináttaskattur (107 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

Frekari upplýsingar um kortið má fá á vefsíðunni www.utilegukortid.is