Á morgun, laugardaginn 10. febrúar, kl. 13:00 verður útgáfuhátíð í Hofi í tilefni af útkomu bókarinnar „Til starfs og stórra sigra“ – Saga Einingar-Iðju 1906-2004.
Þessi dagur var valinn því þann 10. febrúar, fyrir 55 árum, sameinuðust Verkakvennafélagið Eining og Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar.
Í tilefni af útgáfunni mun félagið afhenda fjórum félögum/stofnunum á félagssvæðinu gjöf.
Sérstakur gestur hátíðarinnar verður forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson.
Meðal dagskráratriða:
Ávörp:
Í lok hátíðar verður boðið upp á kaffi og kleinur.
Það er von félagsins að sjá sem flesta mæta á hátíðina og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Ókeypis aðgangur