Vert er að minna á að greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 20. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.
Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi 18. desember næstkomandi til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2014.