ÚTBOÐ - Framkvæmdir á 2. hæð Skipagötu 14

Stéttarfélagið Eining–Iðja óskar eftir tilboðum vegna breytinga á skrifstofum Einingar–Iðju á 2. hæð við Skipagötu 14 á Akureyri. Framkvæmdasvæðið er um 400m² að flatarmáli. Framkvæmdirnar felast í frárifi og förgun á innveggjum og innréttingum, uppsetningu á nýjum innveggjum og innréttingum, lagningu á nýjum gólf- og loftaefnum, auk breytinga á snyrtingum í sameign.

Bjóðendum er boðið til kynningarfundar í húsnæði Einingar–Iðju Skipagötu 14 á 2. hæð, þriðjudaginn 15. október 2013, kl. 11:00 og verða þar fulltrúar verkkaupa og hönnuður. Í framhaldi af fundinum gefst bjóðendum kostur á að skoða aðstæður á væntanlegum verkstað. 

Nálgast má útboðsgögn eftir kl. 15 fimmtudaginn 10. október 2013. með því að senda fyrirspurn á form@nett.is og óska eftir gögnum á rafrænu formi. Gefa þarf upp netfang, símanúmer og kennitölu bjóðanda.

Tilboðum skal skila í afgreiðslu Einingar-Iðju á 2. hæð í Skipagötu 14 Akureyri fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 24. október 2013 og verða tilboðin opnuð á sama stað kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Til þess að tilboð séu gild þurfa bjóðendur vera í skilum með lífeyrissjóðs- og stéttarfélagsgjöld, öll opinber gjöld ásamt öðru því sem tilgreint er í útboðslýsingu útboðsins.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.

Eining–Iðja
Skipagötu 14
600 Akureyri