Nú er orðið uppselt í ferð félagsins til Austurríkis dagana 9. til 16. ágúst 2018, en tekið er við skráningum á biðlista. Vel gengur að skrá í innanlandsferðina, en það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðina. Kíkið við á skrifstofur félagsins, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.
Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2018 hér.
Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.
Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.