Upplýsingar á ensku og pólsku

Á heimasíðunni má finna tvo bæklinga frá ASÍ á rafrænu formi sem hafa að geyma ýmsar upplýsingar úr kjarasamningum aðildarfélaga ASÍ við Samtök atvinnulífsins. Annar bæklingurinn er á ensku/íslensku og hinn á pólsku/íslensku. Bæklingarnir verða tiltækir í prentformi í byrjun næsta árs.

Á heimasíðunni má finna ýmsar upplýsingar á öðrum tungumálum en íslensku, m.a. hefur félagið látið þýða kjarasamning við SA svo að segja í heild sinni yfir á pólsku.