Í gær (8. apríl) sendi Starfsgreinasambandið út kjörgögn vegna atkvæðagreiðslu um
nýtt samkomulag við ríkið. Kjörstjórn mætti á skrifstofu sambandsins í gær í þeim tilgangi að senda kjörgögnin
út og það tókst með skipulagðri og góðri vinnu kjörstjórnar og starfsmanna. Á kjörskrá eru tæplega 1.000 manns og munu
þessir sömu einstaklingar fá kjörgögnin í hendurnar á næstu dögum. Eining-Iðja hvetur að sjálfsögðu alla
kosningabæra félagsmenn til að nýta sitt atkvæði og taka afstöðu til samkomulagsins.
Þess má geta að atkvæði verða að hafa borist kjörstjórn félagsins, sem staðsett er í Reykjavík, fyrir kl. 12:00,
þann 23. apríl nk. Atkvæði sem berast eftir það verða ekki talin (póststimpill gildir ekki).