Á næstunni mun félagið halda fjölmarga undirbúningsfundi vegna kröfugerðar þar sem farið verður yfir sérkröfur einstakra hópa. Í dag verða tveir fundir og hefjast þeir báðir kl. 17:00 í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Fundirnir í dag eru fyrir starfsfólk MS, Coca-Cola Eur.Partn. Ísland ehf. og alla sem starfa í kjötvinnslu og annarri matvælaframleiðslu, þó ekki fiskvinnslu.
8. maí - Akureyri, Alþýðuhúsið
Þetta eru opnir fundir og hvetjum við alla félagsmenn til að mæta á sinn fund. Verið dugleg við að hnippa í vinnufélagana og minnið þá á að mæta.
Sjáumst öll, tökum virkan þátt í kröfugerð félagsins.
Smelltu á myndina til að stækka hana