Nú standa yfir undirbúningsfundir vegna kröfugerðar þar sem farið er yfir sérkröfur einstakra hópa. Í dag, þriðjudaginn 15. maí, verða sjö fundir og hefjast þeir kl. 17:00 eða kl. 20:00 í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Á morgun verða svo haldnir þrír fundir.
16. maí – Akureyri, Alþýðuhúsið
Þetta eru opnir fundir og hvetjum við alla félagsmenn til að mæta á sinn fund. Verið dugleg við að hnippa í vinnufélagana og minnið þá á að mæta.
Sjáumst öll, tökum virkan þátt í kröfugerð félagsins.
Smelltu á myndina til að stækka hana