Undirbúningur kröfugerðar, sex fundir í næstu viku

Fundirnir verða á 2. og 4. hæð Alþýðuhússins
Fundirnir verða á 2. og 4. hæð Alþýðuhússins

Á næstunni mun félagið halda fjölmarga undirbúningsfundi vegna kröfugerðar þar sem farið verður yfir sérkröfur einstakra hópa. Í næstu viku verða sex fundir, fjórir á mánudag og tveir á þriðjudag. Fundirnir verða haldnir í Alþýðuhúsinu á Akureyri og hefjast annarsvegar kl. 17:00 og hinsvegar kl. 20:00.

7. maí - Akureyri, Alþýðuhúsið

  • 2. hæð kl. 17-19 Hótel og ferðaþjónusta
  • 2. hæð kl. 20-22 Ræsting
  • 4. hæð kl. 17-19 Fiskvinnsla
  • 4. hæð kl. 17-19 Matráðar, þvottahús og öryggisverðir (Almenni vinnumarkaðurinn)

8. maí - Akureyri, Alþýðuhúsið

  • 2. hæð kl. 17-19 Mjólkursamsalan og Coca-Cola Eur.Partn. Ísland ehf.
  • 4. hæð kl. 17-19 Kjötvinnslur

Þetta eru opnir fundir og hvetjum við alla félagsmenn til að mæta á sinn fund. Verið dugleg við að hnippa í vinnufélagana og minnið þá á að mæta.

Sjáumst öll, tökum virkan þátt í kröfugerð félagsins.

Smelltu á myndina til að stækka hana