Undirbúningur kröfugerðar, sérkröfur einstakra hópa

Á næstunni mun félagið halda fjölmarga undirbúningsfundi vegna kröfugerðar þar sem farið verður yfir sérkröfur einstakra hópa.

Þetta eru opnir fundir og hvetjum við alla félagsmenn til að mæta á sinn fund. Verið dugleg við að hnippa í vinnufélagana og minnið þá á að mæta.

Fundirnir verða á Akureyri frá 7. til 17. maí, á Dalvík 17. maí, Grenivík og Hrísey 22. maí og í Fjallabyggð 23. maí. Sjá nánari tímasetningar og staðsetningar funda hér fyrir neðan.

Sjáumst öll, tökum virkan þátt í kröfugerð félagsins.

Smelltu á myndina til að stækka hana