Umsóknir um orlofshús

Búið er að opna fyrir umsóknir á netinu vegna orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar. Upplýsingar um hvað er í boði má finna á nýrri orlofshúsasíðu félagsins sem var verið að taka í gagnið. Einnig verða upplýsingar í orlofsblaði félagsins sem kemur út 18. mars nk. Síðasti skiladagur umsókna er fimmtudagurinn 2. apríl nk., en úthlutun fer fram nokkrum dögum síðar. Þeir sem fá úthlutað þurfa að vera búnir að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 4. maí. Í byrjun maí verður opnað á netinu fyrir laus hús. Þá gildir fyrstir koma, fyrstir fá.

ATHUGIÐ! Einungis er hægt að senda inn rafrænni umsókn í gegnum Orlofshúsavefinn. Hægt er að skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum í síma eða á korti. Ef þú lendir í vandræðum við að senda inn umsókn getur þú fengið aðstoð á skrifstofum félagsins.

Ekki bara hús í boði
Að venju geta félagsmenn sótt um „Orlof að eigin vali,“ og keypt gistimiða á nokkur hótel, en með tilkomu nýs Orlofshúsavefs félagsins verða fleiri hótel í boði en áður. Þá verður enn og aftur boðið upp á að kaupa Veiðikortið og Útilegukortið á sérkjörum.

Gæludýr
Gæludýr eru stranglega bönnuð í öllum húsum félagsins, nema í orlofshúsi sem félagið leigir í Húsafelli og í íbúð sem félagið leigir í Súðavík. Dæmi eru um að slæm ofnæmistilfelli hafi komið upp og því er komið inn í leigusamning að leigutaki skuldbindur sig til að borga kr. 25.000 sekt ef þessi regla er brotin.