Umsóknir um orlofshús

Búið er að opna fyrir umsóknir á netinu vegna orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar. Upplýsingar um hvað er í boði má finna t.d. hér og í orlofsblað félagsins sem kemur út 13. mars nk. Síðasti skiladagur umsókna er miðvikudaginn 3. apríl nk., en úthlutun fer fram nokkrum dögum síðar. Þeir sem fá úthlutað þurfa að vera búnir að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 2. maí. Í byrjun maí verður opnað á netinu fyrir laus hús. Þá gildir fyrstir koma, fyrstir fá.

ATHUGIÐ! Einungis er hægt að senda inn rafrænni umsókn í gegnum Félagavefinn

Ekki bara hús í boði
Að venju geta félagsmenn sótt um „Orlof að eigin vali,“ og keypt gistimiða á Fosshótel, gistimiða á nokkur KEA-hótel og greiðslumiða á Edduhótelin. Þá verður enn og aftur boðið upp á að kaupa Veiðikortið og Útilegukortið á sérkjörum.

Gæludýr
Gæludýr eru stranglega bönnuð í öllum húsum félagsins, nema í húsi sem félagið leigir í Kötluholti í Biskupstungum.