Umsóknarfrestur íbúða og orlofshúsa um jól og áramót

Eins og undanfarin ár þá verða orlofsíbúðir og orlofshús félagsins úthlutað um jól og áramót. Byrjað er að taka við umsóknum og verður hægt að sækja um til fimmtudagsins 15. nóvember nk. Úthlutað verður eftir punktainneign viðkomandi.

Hægt er að sækja um íbúðir í Reykjavík eða á Egilsstöðum og orlofshús í Tjarnargerði, Svignaskarði eða á Illugastöðum.

Það eina sem þarf að gera er að hringja í síma 460 3600 eða kíkja við á einhverja af skrifstofum félagsins og sækja um.