Umboð til að halda áfram

Í gær kynnti Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, meginlínur í drögum að nýjum kjarasamningi við SA fyrir samninganefnd félagsins. Mikil og góð umræða urðu um samningsdrögin og í lok fundar var samþykkt að halda viðræðunum áfram á grundvelli þessara samningsdraga.