Um 540 umsóknir um orlofskosti

Nýlega rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Orlof að eigin vali.” Til félagsins bárust um 540 umsóknir og er vinnu við að fara yfir þær lokið og búið að úthluta. Þeir sem sóttu um geta skráð sig inn á nýjan orlofshúsavef félagsins og fundið undir liðnum SÍÐAN MÍN svarbréfið frá félaginu.

Allir sem sóttu um fengu svar á rafrænan hátt en svo virðist vera að sumir sjái ekki póstinn sem sendur var, sérstaklega ef viðkomandi er með gmail eða hotmail netfang. Skoðið vel í ruslpóstinn ykkar eða undir liðnum samfélag/others.

Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra, um 450 fengu já en um 90 fengu nei.

Þeir sem fengu úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 15. maí nk.

18. maí kl. 10 verður opnað fyrir orlofshús á netinu fyrir þá sem fengu neitun og 25. maí verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Punktakerfi
Til að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun hefur félagið notað og þróað punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.