Tvö ný störf hjá félaginu - á morgun er síðasti dagur til að sækja um

Eining Iðja leitar að tveimur öflugum starfsmönnum, þjónustufulltrúa á kjarasviði og skráningar- og innheimtustjóra.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2020.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum, sigga@mognum.is

Sótt er um störfin á www.mognum.is

Umsóknum um störfin þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.