Tvö námskeið í jólakortagerð

Félagið fyrirhugar að halda tvö námskeið í jólakortagerð fyrir félagsmenn ef næg þátttaka fæst, annað á Akureyri og hitt í Fjallabyggð. Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður verður kr. 1.000. Leiðbeinandi verður Linda Óladóttir.

Námskeið á Akureyri verður þriðjudaginn 12. nóvember nk. kl. 19:00, í sal félagsins á Akureyri, 2. hæð Skipagötu. Námskeiðið í Fjallabyggð verður fimmtudaginn 14. nóvember nk. kl. 19:00, í sal félagsins í Fjallabyggð, Eyrargötu 24b Siglufirði

Skráning á skrifstofum Einingar-Iðju sem fyrst og í síma 460 3600, á venjulegum opnunartíma.