Tveir nýir starfsmenn

Eva og Vilhelm
Eva og Vilhelm

Í gær hóf störf hjá félaginu Vilhelm Adolfsson en hann var nýlega ráðinn verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits fyrir Eyjafjarðarsvæðið og Norðurland vestra. 14 stéttarféög sem eru starfandi í Eyjafirði og á Norðurlandi vestra gengu nýlega frá samkomulagi um stóraukið vinnustaðaeftirlit með því að ráða einn sameiginlegann starfsmann fyrir svæðið. Vilhelm verður með aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri en mun skipuleggja og fara í vettvangsferðir á vinnustaði á samningssvæðinu sem er Eyjafjörður, Skagafjörður og Húnavatnssýslur. Hér má lesa nánar um samkomulag félaganna.

Vilhelm er með netfangið villi@ein.is og beinn sími á hann er 460 3617

Eva Dögg Helgadóttir var ráðin í sumarafleysingar í afgreiðslu félagsins á Akureyri og hefur þegar hafið störf.