Tveir kynningarfundir um nýjan samning við ríkið

Í síðustu viku var skrifað undir nýjan kjarasamning við ríkið með fyrirvara um samþykki félagsmana í atkvæðagreiðslu. Í næstu viku  verða tveir kynningarfundir um samninginn, á Akureyri og í Fjallabyggð. Þessir fundir eru fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríkinu.

  • Fundurinn á Akureyri verður mánudaginn 16. mars kl. 17 í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins, Skipagötu 14. 
  • Fundurinn í Fjallabyggð verður þriðjudaginn 17. mars kl. 17:00 í sal félagsins í Fjallabyggð, Eyrargötu 24 b. 

Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.

Nýr kjarasamningur við ríkið (Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila)

Helstu atriði samningsins eru sem hér segir:

  •  Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023.
  • Laun hækka í samræmi við lífskjarasamninginn og hækka frá 1. apríl 2019.
  • Lágmarksorlof hjá öllum starfsmönnum verður 30 dagar.
  • Markviss skref til styttingar vinnuvikunnar. Frá 1. janúar 2021 styttist vinnuvikan um samtals 65 mínútur fyrir fólk í fullu starfi.
  • Vinnuvika vaktavikufólks verður 36 stundir m.v. fullt starf og nýtt launamyndunarkerfi tekið upp. Breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem býður upp á manneskjulegra umhverfi með styttri vinnuviku, þar sem miðað er að bættri heilsu, auknu öryggi og betri samþættingu einkalífs og vinnu.
  • Tekin er upp ný launatafla sem byggir á álagsþrepum en ekki aldurþrepum, í tengslum við það eru stofnanasamningar endurskoðaðir og er ráðstafað allt að 142 milljónum króna vegna þessa.
  • Framlag í orlofssjóð hækkar.
  • Fellt út ákvæði um að heimilt sé að láta fólk gista í tjöldum.
  • Persónuuppbót sem greiðist 1. maí ár hvert og nemur 50.450 kr. fyrir fullt starf árið 2020. Desemberuppbót hækkar úr 115.850 kr. árið 2019 í 124.750 kr. árið 2022. Tekið er upp nýtt ákvæði að félagsmenn sem starfað hafa samfellt í 3 ár geta fengið launað leyfi í samtals í þrjá mánuði til að stunda viðurkennt starfsnám.

Allir sem starfa eftir samningnum fá sendan kynningarbækling frá SGS.

Gert er ráð fyrir að rafrænni atkvæðagreiðslu um samninginn ljúki 26. mars nk.