Tveir kynningarfundir í dag

Í dag verða tveir kynningarfundir á nýja samningnum fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum, í Fjallabyggð og á Dalvík. Á morgun, fimmtudginn 26. nóvember, verður fundur á Grenivík og næsta mánudag á Akureyri. 

Miðvikudagur 25. nóvember

  • Fjallabyggð, á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24 b á Siglufirði kl. 17:30
  • Dalvík, í námsveri SÍMEY við Skíðabraut kl. 20:00

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.
Atkvæðagreiðsla um nýja samninginn hefst þriðjudaginn 1. desember nk. og mun ljúka á miðnætti 8. desember nk. Starfsgreinasambandið sér um atkvæðagreiðsluna. Allir félagsmenn Einingar-Iðju sem greiddu félagsgjöld í október og starfa hjá sveitarfélagi, alls tæplega þúsund manns, fá sendan kynningarbækling og leiðbeiningar um atkvæðagreiðsluna. Bæklingurinn mun fara í póst næsta föstudag og berast inn um lúgu félagsmanna fljótlega eftir helgi. Ef einhver fær ekki send gögn frá SGS, en starfa hjá sveitarfélagi og ferðu það í október, hafið þá samband við félagið. 

Sýnum ábyrga afstöðu!

Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.