Dagana 23. til 25. mars mun félagið halda sex opna félagsfundi á jafnmörgum stöðum á
félagssvæðinu þar sem farið verður yfir stöðuna í samningaviðrum við Samtök atvinnulífsins og atkvæðagreiðslu um
verkfallsheimild sem nú stendur yfir. Í dag verða tveir fundir, sá fyrri á Grenviík og sá seinni á Akureyri. Þessir fundir eru fyrir
þá sem starfa á almenna vinnumarkaðnum, þ.e. eftir kjarasamningi SGS við SA. Fundirnir verða túlkaðir yfir á ensku og
pólsku.
Miðvikudagur – 25. mars
- Grenivík kl. 17– Í Gamla barnaskólanum
- Akureyri kl. 20– Alþýðuhúsið, Skipagata 14 - Salur á 4. hæð
Kæri félagi – valdið er þitt!!!
Félagið hvetur alla félagsmenn sem starfa á almenna vinnumarkaðinum til að mæta á félagsfundina og jafnframt taka þátt í
atkvæðagreiðslunni.
Launafólk í landinu þarf á þínum kröftum að halda. Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum og kynnum okkur
stöðuna áður en við greiðum atkvæði.
Oft hefur verið sagt að samstaða skiptir miklu máli. Það er rétt. Við þurfum öll að standa saman til að ná fram okkar
sanngjörnu kröfum. Sýnum samstöðumáttinn í verki og tökum þátt í atkvæðagreiðslunni.