Tveir fundir í dag

Fundurinn á Akureyri verður í Alþýðuhúsinu
Fundurinn á Akureyri verður í Alþýðuhúsinu

Í dag verða haldnir tveir almennir félagsfundir, á Grenivík og á Akureyri. Í vikunni er búið að halda sambærilega fundi í Hrísey, á Dalvík og í Fjallabyggð. Á fundunum er m.a. verið að kynna tillögur að breytingum á lögum félagsins, fjalla um helstu niðurstöður úr kjarakönnun og fleira.

Fundirnir verða túlkaðir á pólsku.

Félagar, fjölmennum!

  • Fimmtudagur 26. janúar
    • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 17:00 
    • Akureyri: Í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins kl. 20:00
Dagskrá 
  1. Kynntar tillögur að breytingar á lögum félagsins.
  2. Vinnustaðaeftirlit félagsins.
  3. Félagafrelsi
  4. Kjarakönnun félagsins - helstu niðurstöður.
  5. Önnur mál.