Trúnaðarráð fékk kynningu á Einn réttur - ekkert svindl!

Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, kom á trúnaðarráðsfund félagsins sem fram fór fyrr í vikunni og fjallaði þar um verkefnið Einn réttur - ekkert svindl! sem Alþýðusamband Íslands í samstarfi við aðildarsamtök sín hleypti af stokkunum nýlega. Verkefninu er beint gegn undirboðum á vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi en síðustu mánuði hafa stéttarfélögin orðið vör við vaxandi brotastarfsemi á vinnumarkaði. Sérstaklega í byggingargeiranum og ferðaþjónustunni sem eru helstu vaxtargreinar í þeirri uppsveiflu sem nú ríkir á vinnumarkaði.

Markmið verkefnisins:

  • Að tryggja kjör og réttindi á íslenskum vinnumarkaði fyrir alla sem hér starfa, þ.m.t. útlendinga sem hingað koma og ungt fólk sem er að hefja þátttöku á vinnumarkaði.
  • Að tryggja starfsemi og eðlilega samkeppnisstöðu fyrirtækja sem virða kjarasamninga og lög og þau viðmið og samskipti sem gilda á íslenskum vinnumarkaði og eru kjölfestan í íslensku atvinnulífi.
  • Að tryggja að sameiginlegir sjóðir samfélagsins fái sitt til að fjármagna m.a. öflugt heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi.

Verkefnið beinist gegn þeim fyrirtækjum sem misnota erlent vinnuafl og ungt fólk og skapa sér þannig samkeppniforskot. Verkefnið beinist ekki gegn erlendum starfsmönnum sem komið hafa hingað til lands í góðri trú.

Áhersla er lögð á:

  • Breytt viðhorf með það að markmiði að landsmenn styðji baráttuna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði með virkum hætti.
  • Að upplýsa erlenda starfsmenn og ungt fólk um réttindi sín og skyldur.
  • Að upplýsa erlend fyrirtæki og aðra atvinnurekendur sem ráða erlenda starfsmenn og ungt fólk um skyldur sem því fylgja.
  • Að upplýsa brot á vinnumarkaði, krefjast úrbóta og koma upplýsingum um meint brot til viðkomandi stjórnvalda og eftirlitsstofnana.
  • Að upplýsa íslenskt launafólk og allan almenning um mikilvægi þess að uppræta undirboð á vinnumarkaði og svarta atvinnustarfsemi.