Trúnaðarmenn boðaðir á fund

Fundurinn verður á Hótel KEA
Fundurinn verður á Hótel KEA

Á morgun, miðvikudaginn 29. janúar, verður fundur með trúnaðarmönnum sem vinna eftir almenna samningnum, þ.e. þeir sem eru í Matvæla- og þjónustudeild og Iðnaðar- og tækjadeild félagsins, þar sem fara á yfir stöðuna í samningaviðræðum við SA og ræða framhaldið. Fundurinn fer fram á Hótel KEA á Akureyri og hefst kl. 20:00.

Fyrir hádegi verður hringt í þessa trúnaðarmenn og þeir boðaðir á fundinn. Trúnaðarmönnum utan Akureyrar verður einnig boðið upp á akstur á fundinn.