Trúnaðarmannanámskeiði 2 að ljúka

Nú stendur yfir trúnaðarmannanámskeið, 2. hluti, í sal félagsins á Akureyri. Námskeiðið hófst sl. miðvikudag og lýkur í dag.  Leiðbeinandi í gær og á miðvikudaginn var Guðmundur Hilmarsson, frá Félagsmálaskóla Alþýðu. Í dag sjá starfsmenn félagsins um fræðsluna og eru nú að fræðast um kjarasamninga og félagið sjálft.

Á námskeiðinu kynnast nemendur starfsemi stéttarfélagsins og réttindum félagsmanna. Einnig læra nemendur á innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun þeirra, ásamt lestri launaseðla og uppbyggingu trygginga.

Stiklur um efnið:

  • Nemendur kynnast starfsemi stéttarfélagsins, réttindum félagsmanna
  • Nemendur læra á innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim
  • Nemendur kynnast sjóðum félagsins og réttindum félagsmanna í þeim
  • Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða
  • Nemendur kynnast grunnuppbyggingu launaseðla og launaútreikninga svo og staðgreiðslu skatta
  • Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum
  • Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra
  • Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda