Trúnaðarmannanámskeið stendur nú yfir

Nú stendur yfir trúnaðarmannanámskeið, 2. hluti, í sal félagsins á Akureyri og taka 13 trúnaðarmenn þátt í því, 12 frá Einingu-Iðju og 1 frá Sjúkraliðafélaginu. Námskeiðið hófst í gær og mun því ljúka á morgun.

Í gær fór Guðmundur Hilmarsson, frá Félagsmálaskóla alþýðu, yfir almannatryggingar og lífeyrissjóði en í dag er hann að fara yfir lestur launaseðla og launaútreikning. Á morgun munu starfsmenn Einingar-Iðju fara yfir starfsemi félagsins, kjarasamninga og sjóði.

Stiklur um efnið:

  • Nemendur kynnast starfsemi stéttarfélagsins, réttindum félagsmanna
  • Nemendur læra á innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim
  • Nemendur kynnast sjóðum félagsins og réttindum félagsmanna í þeim
  • Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða
  • Nemendur kynnast grunnuppbyggingu launaseðla og launaútreikninga svo og staðgreiðslu skatta
  • Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum
  • Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra
  • Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.