Vert er að benda trúnaðarmönnum á að vegna óviðráðanlega aðstæðna þurfti að fresta þeim trúnaðarmannanámskeiðum sem búið var að setja á haustönnina. Eftirfarandi námskeið verða á vorönn.
Er nær dregur námskeiðum verða send bréf á þá trúnaðarmenn sem geta skrá sig á viðkomandi námskeið. Námskeiðin fara fram í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14 á Akureyri.
|
Vorönn 2020 |
Hluti 1 |
22. til 24. janúar |
Hluti 2 |
26. til 28. febrúar |
Hluti 3 |
18. til 20. mars |
Hluti 4 |
15. til 17. apríl |
Trúnaðarmenn Einingar-Iðju eru mikilvægir hlekkir í starfi félagsins. Samkvæmt samningum á að vera trúnaðarmaður á öllum vinnustöðum sem hafa 5 eða fleiri félagsmenn. Þar sem starfa fleiri en 50 eiga að vera 2 trúnaðarmenn.
Við kosningu öðlast trúnaðarmaður um leið sérstaka lagalega vernd í starfi sínu, fær umboð félagsins til að fara með mál annarra og verður fulltrúi þess á vinnustaðnum. Meginhlutverk trúnaðarmanna er að gæta þess að lög og samningar séu haldnir á vinnustaðnum og vera tengiliður starfsmanna við stéttarfélagið.
Trúnaðarmenn eiga samningsbundinn rétt til að sækja námskeið án launaskerðingar en þurfa að sjálfsögðu að sækja námskeiðin í samráði við yfirmann sinn.
Ef það er ekki trúnaðarmaður á þínum vinnustað hafðu þá samband við skrifstofu Einingar-Iðju og við setjum upp vinnustaðafund til að kjósa trúnaðarmann.