Trúnaðarmannanámskeið í gangi

Nú stendur yfir trúnaðarmannanámskeið þrep 1 í sal félagsins. Námskeiðið stendur yfir í þrjá daga þar sem Sigurlaug Gröndal, frá Félagsmálaskóla alþýðu, fer yfir efni sem kallast Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn, trúnaðarmaðurinn - starf hans og staða og samskipti á vinnustað.
Á þessu námskeiði er samfélagið skoðað frá ýmsum sjónarhornum. Skoðað er hvernig lýðræðislegar ákvarðanir eru teknar og hver lýðræðislegur réttur okkar er í samfélaginu. Farið er yfir hvernig vinnumarkaðurinn er uppbyggður og verkalýðshreyfingin. Farið er í starf trúnaðarmannsins út frá lögum og kjarasamningum og einnig hvernig trúnaðarmaður á að starfa. Verkefni eru lögð fyrir nemendur því tengdu. Þarna fá nemendur að kynnast mismunandi samskiptahefðum og samskiptamynstrum. Einnig er skoðað er hvernig sjálfstraust hefur áhrif á samskipti okkar.

Í næstu viku verður haldið trúnaðarmannanámskeið þrep 2 í sal félagsins á Akureyri. Guðmundur Hilmarsson, frá Félagsmálaskóla alþýðu, mun þar fara yfir lestur launaseðla og launaútreikninga. Á námskeiðinu, sem tekur tvo daga, munu nemendurnir læra að þekkja uppbyggingu launaseðla og mikilvægi þess að geyma launaseðla. Þau læra að þekkja útreikninga á einingaverði og yfirvinnutíma, stórhátíðarkaupsog vaktaálags, einnig læra þau að þekkja uppbyggingu skattþrepa og útreikning frádráttarliða. Þau þurfa m.a. að leysa verkefni sem felst í því að reikna út launaseðil frá grunni.
Einnig munu starfsmenn stéttarfélaganna kenna á námskeiðinu en þá fá nemendur kynningu á starfsemi síns félags, réttindum félagsmanna og um sjóði félaganna. Einnig verður farið í túlkun kjarasamninga og gildi þeirra.