Trúnaðarmannanámskeið í fjarfundi

Nú stendur yfir trúnaðarmannanámskeið, 1. hluti, og voru 15 trúnaðarmenn skráðir á það, allir frá Einingu-Iðju. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu var ákveðið að vera með námkeiðið í fjarfundi. Námskeiðið hófst sl. miðvikudag og mun ljúka í dag.  Leiðbeinandi er Sigurlaug Gröndal, frá Félagsmálaskóla Alþýðu. 

Á námskeiðinu er farið yfir hvert hlutverk stéttafélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði er. Einnig er farið í hvert hlutverk trúnaðarmanns er á vinnustað og samskipti á vinnustað, hvað veldur slæmum samskiptum og hvernig megi stuðla að góðum samskiptum.

Nánar um námskeiðið
Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkað. Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna. Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera? Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum. Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð. Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim. Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum. Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra. Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.